Kata var svo elskuleg að klukka mig þrátt fyrir mikil mótmæli af
minni hálfu og svo var ég líka klukkuð af Bryndísi. Já, ég var sem
sagt tvíklukkuð og hér eru því 10 (5 fyrir hvort klukk) ómerkilegar
staðreyndir um mig:
Fact 1
Mig kítlar alveg
einstaklega mikið, alls staðar nema undir iljunum. Tilhugsunin ein
um að það sé verið að fara að kítla mig nægir yfirleitt til þess að
ég fari að koma mér í viðbragðsstöðu.
Fact 2
Ég er alveg
einstaklega viðutan og gleymin. Algeng setning hjá mér þessa dagana
er einmitt: “Oh, ég týndi gleraugunum mínum...aftur!!!” Þetta á
líka við um bíllyklana, veski mitt og fleira. Það er ekki óalgeng
sjón að sjá mig hálfhlaupandi út um allt hús að leita að einhverju
þegar ég er að verða of sein.
Fact 3
Ég er með
fullkomnunaráráttu og er allt of sjálfgagnrýnin. Ég er sjaldan
alveg fullkomlega ánægð með hluti sem ég geri.
Fact
4
Ég þjáist af of
mikilli samvisku....sem er ekki sniðugt þegar maður er í
háskólanámi. Ég vildi að ég væri meira “þetta reddast” týpa. Mér
líður hreinlega illa að vera eftir á í námi mínu og áður en ég fer
í próf verð ég að vera með ALLT á hreinu.
Fact 5
Ég þoli ekki að
hafa rangt fyrir mér, enda er ég yfirleitt ekki mikið að rökræða um
hluti nema ég viti fullkomlega um hvað ég er að tala og þá hef ég
yfirleitt mjög sterkar skoðanir. Ég á sem sagt mjög erfitt með að
taka gagnrýni og reyndar líka hrósi.
Fact 6
Ég er einstaklega
“orðheppin” og misskilin öðrum en sjálfri mér oft til mikillar
skemmtunar! Já svona er að tala áður en maður hugsar! Skulum ekki
tala meira um það.
Fact 7
Ég er búin að
taka titilinn af Kötu sem mesta matargatið í vinkvennahópnum. Þetta
kemur samt og fer, stundum er eins og maginn minn skreppi saman, en
þá klára ég samt af disknum bara af þrjóskunni einni saman.
Fact
8
Ég er hryllilega
áttavillt, þ.e. ég vel alltaf krókaleiðir (vitlausar leiðir). Það
má t.d ekki elta mig í búðum, skemmtigörðum í útlöndum og alls ekki
leyfa mér að velja hvaða afgreiðslukassa er farið á, því ég vel
pottþétt kassann sem að eitthvað vesen verður á.
Fact 9
Það á allt að
vera mjög einfalt og stílhreint í kringum mig til þess að mér líði
vel. Mér líður t.d. mjög illa á stöðum eins og Kolaportinu.
Fact
10
Ég dýrka:
piparmyntuís, að fara í heita sturtu og skíða upp í nýumbúið rúm,
að draga sængina mína fram í stofu og horfa á vídeó, þegar
Schumacher tapar í formúlunni, samlokugrillið mitt, kassagítarlög,
kertaljós, sálfræðikennarann minn.........
Samkvæmt hefðinni
á maður víst að klukka 5 aðrar manneskjur (eða 10 í mínu tilviki)
en þar sem að ég er rosalega á móti svona löguðu og keðjubréfum
yfir höfuð þá ætla ég að ekki að klukka neinn. Ætla að drepa hluta
af þessari klukk-keðju og mæli með því að fleiri geri hið sama. Þið
sem að lásuð þetta allt saman eruð hetjur !!!
Hófí -
antiklukkisti...